
.png)
HEILDSALA MEÐ VÍN OG HUNANG
FRÁ SARDINÍU

Djarfi samstarfsaðili Ítalskra kvikmyndadaga 2026
Djarfi tekur þátt í Ítölskum kvikmyndadögum sem haldnir eru í Bíó Paradís dagana 12.–15. nóvember 2026.
Hátíðin er haldin í fyrsta sinn og býður upp á fjölbreytta dagskrá með ítölskum kvikmyndum og menningarviðburðum.
Djarfi hefur frá stofnun lagt áherslu á samstarf við framleiðendur á Sardiníu og að kynna íslenskum neytendum gæði og sérstöðu eyjunnar.
Meðal sælkeravara sem Djarfi flytur inn er hunang frá Bresca Dorada, framleiðanda sem nýtir fjölbreytta flóru Sardiníu til að skapa hunang með ólíka bragðeiginleika.
Við fögnum tækifærinu til að styðja við ítalska menningu á Íslandi og óskum skipuleggjendum og gestum góðrar hátíðar.

Argiolas í fyrsta skipti á Íslandi
Vín frá Argiolas nú loksins fáanleg á Íslandi.
Argiolas er vínekra á suðurhluta Sardiníu staðsett í bænum Serdiana. Saga fyrirtækisins spannar 120 ár og er það í dag rekið af þriðju kynslóð Argiolas fjölskyldunnar. Í heildina framleiðir Argiolas 21 tegund af léttvínum en af þeim eru 9 tegundir nú fáanlega hjá Djarfa ehf. Þar er fremst í flokki hið heimsfræga Turriga rauðvín sem safnarar víða að keppast við að eignast. Nánari upplýsingar um vínin má finna hér .


Ný vín frá Capichera
Amistai og VT nú fáanleg á Íslandi
Nýlega bárust okkur fyrstu flöskurnar af Amistai rósavíninu og VT hvítvíninu til landsins.
Bæði eiga vínin það sameiginlegt að hafa fengið að þroskast í eikartunnum sem er sjaldgæfara þegar rósavín og hvítvín eru annars vegar.
Sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana.


Bjórhátíð Ölverks - Hveragerði - 3. og 4. október
Vínin frá Sardiníu
Okkur hjá Djarfa bauðst að taka þátt í bjórhátiðinni hjá Ölverki í Hveragerði um helgina. Þó að við seljum ekki bjór þá er þetta skemmtilegt tækifæri til þess að kynna okkar frábæru vín frá Audarya og Cantina Santadi á Sardiníu.
Boðið verður upp á hvítvín, freyðivín og rauðvín.
Miðasala á tix.is
HVÍTT
FREYÐI
RAUTT
.png)
Nýtt í Vínbúðinni
Spumante freyðivínið frá Audarya í sölu 1. ágúst
Spumante freyðivínið er nú að koma í sölu hjá eftirfarandi útsölustöðum Vínbúðanna.
-
Kringlan
-
Heiðrún
-
Álfrún Hafnarfirði
-
Skútuvogur
Freyðivínið er ferskt með tónum af perum, sítrus og jurtum.
Flöskumiðinn er með hitanæmu bleki þannig að miðinn breytist þegar flaskan er orðin mátulega köld. Virkilega flott flaska með frábæru innihaldi.

.png)

Nýtt í Vínbúðinni
Rosato rósavínið og Nuracada rauðvínið kemur í sölu 1. júní
Rosato og Nuracada vínin eru nú að koma í sölu hjá eftirfarandi útsölustöðum Vínbúðanna.
-
Kringlan
-
Heiðrún
-
Álfrún Hafnarfirði
-
Skútuvogur - Nuracada
-
Mosfellsbær - Rosato
Rósavínið er ferskt og svalandi í íslenska sumrinu og rauðvínið er fullkomið með grillinu. Njótið!


Nýtt í Vínbúðinni
Þrjár gerðir carignano þrúgunnar komnar í sölu
Grotta Rossa, Rocca Rubia og Terre Brune eru nú komin í sölu hjá eftirfarandi útsölustöðum Vínbúðanna.
-
Kringlan
-
Heiðrún
-
Skútuvogur
-
Álfrún Hafnarfirði
Um er að ræða gæðavín sem unnin eru úr Carignano þrúgunni. Núna er ástæða til þess að prófa og upplifa þessi vín sem eru öll mismunandi þó að uppruninn sé sá sami. Njótið!
Framleiðendur
Hjá Djarfa leggjum við mikla áherslu á að þekkja framleiðendurna sem við störfum með. Við heimsækjum vínekrurnar, kynnum okkur starfsemina og víngerðina og smökkum vínin á staðnum áður en ákvörðun er tekin um samstarf.
Þegar heim er komið fá vínin frekari yfirferð hjá hópi vínsérfræðinga og vínáhugamanna sem leggja mat á gæði þeirra og sérstöðu. Að því loknu hefjum við gjarnan innflutning í litlu magni til að kanna viðtökur áður en stærri pantanir eru gerðar.
Með þessu viljum við tryggja vandað vöruval og bjóða viðskiptavinum okkar vín sem við höfum sjálf sannfæringu fyrir.




Vín frá Sardiníu
"Ef þig langar að prófa eitthvað einstakt"
Djarfi sérhæfir sig í vínum frá Sardiníu, eyju sem á sér langa og merka víngerðarsögu.
Sardínísk vín hafa sterka sérstöðu, ekki síst vegna staðbundinna þrúgutegunda á borð við Cannonau, Carignano og Vermentino. Fjölbreytt landslag, jarðvegur og loftslag eyjunnar skapa ólíkar aðstæður til vínræktar og gefa vínunum sérstakan karakter.
Á Sardiníu fara aldagamlar hefðir og nútímaleg víngerð saman. Framleiðendurnir leggja metnað í að varðveita vínmenningu eyjunnar og draga fram það besta sem landið og þrúgurnar hafa upp á að bjóða.
Þetta eru vín sem eiga skilið að vera uppgötvuð.



Um Djarfa
Óskar Tryggvi Svavarsson
Áhugi minn á vínum frá Sardiníu kviknaði fyrir tilviljun þegar okkur hjónunum var boðið í afmæli til eyjunnar haustið 2023.
Í ferðinni heimsóttum við meðal annars vínekruna Audarya og tókum þátt í vínsmökkun sem hafði mikil áhrif á mig. Ég heillaðist af vínunum, fólkinu og sögunni á bak við framleiðsluna og sá strax fyrir mér að þessi vín ættu fullt erindi til Íslands.
Þannig varð Djarfi ehf. til.
Ég hef lengst af starfað í flugi og er flugstjóri hjá Icelandair. Starfið hefur gefið mér tækifæri til að ferðast víða og kynnast vínum frá ýmsum heimshornum. Áhuginn á vínum leiddi mig einnig í nám hjá Wine & Spirit Education Trust (WSET) í London, þar sem ég lauk Level 2-námi í vínum.
Það sem byrjaði sem áhugamál hefur síðan þróast í spennandi verkefni þar sem ég fæ að kynna íslenskum vínunnendum það besta sem Sardinía hefur upp á að bjóða.
.png)





